Hæ, alle sammen. Ég er í smá letikasti þannig að ég föndraði þetta vídeó. En núna er það búið og ég hef enga afsökun til að koma mér undan því að skrá verkin mín hjá Íslenskri tónverkamiðstöð, best að ljúka þessu af. Góða helgi öll sömul!
Friday, February 05, 2010
Tuesday, February 02, 2010
Sunday, January 03, 2010
Útgáfutónleikar annað kvöld
Það eru útgáfutónleikar annað kvöld! Hér er smá sjónræn kynning á því ;):
Tuesday, December 08, 2009
Stúdíóblogg: Búin að klippa.
(Hluti af Hljómsveit Hafdísar hlustar á nýupptekin lög í ágúst 2007. Frá vinstri: Eiríkur, Grímur, Sandra, Stína og Maggi. Fleiri myndir má finna hér).Ég sit í sófanum inni í litlu stofunni minni, hlusta á "Þjóðlag frá Egóistan" og horfi út um stóra stofugluggann. Úti eru ennþá ljósaskipti og einhver mögnuð blá birta, og rauða ljósaserían á hvíta svalahandriðinu tónar ofsalega fallega við allan blámann. Inni er ég bara með kveikt á lömpum, ég nenni ekki neinni flóðlýsingu. Mér finnst skammdegið æði og nýt þess að sjá birtuna breytast smátt og smátt!
Núna er ég búin að editera diskinn minn og er mjög sátt við útkomuna! Þó þetta séu flestar orðnar nokkurra ára gamlar tónsmíðar (yngsta lagið frá 2007, og upptökurnar líka frá 2007) þá er ég ekki með neinn bjánahroll. Svo er ég búin að skella inn smá elektróník, ekkert yfirþyrmandi, bara smá krydd hér og þar. Það er sem sagt kominn smá Hafdís-2009-bragur á þetta án þess þó að skemma Hafdísarband-2003-2007-stemminguna. Svo eru þarna nokkrar "villur" sem ég tími alls ekki að klippa út (klippi bara villur sem fara í taugarnar á mér). Sumar villurnar er ég meir að segja búin að kópera og föndra meira úr, ekkert skemmtilegra en að taka villu og gera eitthvað fallegt úr henni!
Á morgun er svo stefnan að byrja að fínmixa og mastera.
Ég finn að það er ofsalega freistandi að stinga eitthvað af út úr bænum í dag, labba kannski upp á eitt fjall eða svo, hlusta á þögn einhvers staðar úti í buska. Ég ætla samt að byrja á því að setja eitt loka-pensilstrik á eitt eða tvö lög, æfa mig á gítarinn, sinna heimilisstörfum og ganga frá nokkrum lausum endum varðandi tónleika og slíkt. Ömm...spurning hvort það verði einhver tími fyrir fjallgöngu eftir það...?
Hér er færsla sem ég gerði á ensku þann 3. des. Ég átti alltaf eftir að pósta henni á íslenska bloggið:
STÚDÍÓBLOGG 3. DES, AGAR AGAR:
Í dag var ég að vinna í laginu Agar agar. Ég er búin að rýna inn í tölvuna í allan dag, þannig að þegar ég loka augunum sé ég ekkert nema bylgjur í ýmsum litum (ProTools vinnuglugginn lítur þannig út). Ég er búin að vera að marg-klippa og færa til litla búta, hægri vinstri, aftur og aftur...
Þetta er snúið lag en ég held mér hafi tekist að draga eitthvað fram í því.
Seinna sama dag er ég að synda í Laugardalslauginni. Laugin er volg og notaleg og loftið er kalt og frískandi, enda 7 stiga frost. Það er dimmt og stjörnubjartur himinn. Gufan stígur upp úr lauginni og kallast á við tunglið sem er fullt og veður í skýjum. Þetta minnir mig á þegar við Erica vorum uppi á Esjunni í sumar með skýslæður allt í kring um okkur. Þar sem ég syndi fram og tilbaka tek ég eftir því hvernig tunglsljósið flöktir á botni laugarinnar, alveg eins og hljóðbylgjurnar sem ég er búin að vera að vinna í allan daginn. Þessar bylgjur hreyfast ekki bara frá hægri til vinstri heldur líka upp og niður og á ská. Ég velti því fyrir mér hvernig þessar bylgjur myndu hljóma ef þær væru hljóðbylgjur!
Tuesday, December 01, 2009
Stúdíóblogg: Jólin hennar Hafdísar
(Þessi dásamlega jólamynd frá 1980 sýnir hefðbundið jólahald hjá fjölskyldu minni. Mamma í kjól sem ég vildi óska að væri ennþá til svo ég gæti nappað honum frá henni, Heimir bróðir, Dagný systir, og ég að borða súrmjólk á jólunum. Mér er strítt á því á hverjum einustu jólum að ég vildi bara borða súrmjólk á jólunum þegar allir hinir átu jólamat. (Pabbi tók myndina og er þess vegna ekki með á henni). Þessi mynd prýðir hulstur geisladisks sem ég ætla að setja í fjölföldun á morgun).HINN DISKURINN:
Ekki get ég sagt að afköstin séu mikil í stúdíóinu. Sérstaklega ekki þegar maður fær allt í einu þá flugu í hausinn að fara að vinna í allt öðrum geisladiski. Það verður þó væntanlega mun minna mál þar sem hann er tilbúinn að öllu leiti nema hvað hann er uppseldur, enda ætla ég að láta búa til fleiri á morgun. Þessi hliðarspors-diskur er jóladiskur, leikinn á kassagítar og frekar ólíkur diskinum sem ég á að vera að vinna í. Vinna mín við jóladiskinn vekur líka upp góðar minningar:
Ég man þegar ég tók jólalögin upp í desember 2004. Ég sat á flísalögðu gólfi þáverandi heimilis okkar með eitt stykki míkrófón beint fyrir framan hljómopið á stálstrengja kassagítar. Í þessum stellingum, sem yrðu seint viðurkenndar sem heilsusamlegar, spilaði ég inn nokkra kósý og rólega jólasálma. Mér finnast nefnilega flest jólalög sem maður er bombarderaður með í nóvember og desember frekar stressuð og þreytandi, þannig að markmiðið var að búa til jóladisk sem ég sjálf gæti hugsað mér að hlusta á. Útkoman var svo sett í jólapakka til vina og ættingja. Það gladdi mig mjög að þeir vinir mínir sem fá hausverk af að hlusta á alla aðra músík sem ég geri höfðu gaman af þessum diski, og hafa jafnvel gefið sínum vinum og ættingjum diskinn líka.
Ég var ólétt og komin með nokkuð öfluga bumbu sem gerði það að verkum að ég þurfti að raða gítarnum á mig aðeins öðruvísi en venjulega. Óléttan, og óléttujógað sem ég stundaði, setti einnig mark sitt á stemmninguna sem ég var í. Á meðan ég spilaði inn lögin eitt af öðru einbeitti ég mér að því að gera ekki neitt of hetjulegt, heldur þvert á móti að ná algjörri afslöppun og leyfa einfaldleikanum að njóta sín. Ef mér svo fannst eitthvað hljóma of tens eða stressað þá spilaði ég það aftur og aftur þangað til ég var sátt.
Á morgun ætla ég að fara út í bæ með diskinn og láta búa til nýtt upplag. Þar sem þetta er ofsalega heimatilbúið allt saman þá get ég stillt verði disksins í algjört hóf og selt hann fyrir litlar 1.000 krónur stykkið, sem ætti að vera nokkuð kreppuvænt geisladiskaverð. Þeir sem hafa mögulega áhuga á ofsalega rólegum, hálftíma löngum jóladiski á kassagítar geta heyrt sýnishorn á mæspeisinu mínu og pantað svo diskinn hjá mér ef áhugi er fyrir því (skynjið þið einhverja sölumennsku í þessari bloggfærslu?!?, híhíhí...). Þeim sem ætla að gefa diskinn í jólagjöf býð ég að auki (fyrir 500 krónur) innpökkun og áritaða piparköku með hverjum diski (þ.e. að piparkakan sé merkimiði með "Til [nafns], frá [nafni]"). Ofsa umhverfisvænt, hægt að éta merkimiðana :D. Það gæti orðið líflegur piparkökubakstur hjá mér ef margir vilja svoleiðis. Og þeir sem panta 20 stykki eða fleiri fá heimabakaða pönnsu í kaupbæti :D!! Sem sagt, kósíheit og heimilisleiki í fyrirrúmi.
...pínu bömmer með mæspeisið að bæði lögin þar eru merkt "by Hafdís" en auðvitað er þetta ekki eftir mig heldur gamlir jólasálmar eftir allt annað fólk, og ég hef ekki græna hvernig ég get breytt þessum merkingum á mæspeisinu.
Sem sagt; eftir að barnið er komið á leikskólann fer ég með jóladiskinn í fjölföldun og tek svo aftur til við að mixa hinn diskinn!
P.S. Ohhh, mig langar í pönnsur....
Friday, November 27, 2009
Blogg úr stúdíóinu
Næstu daga mun ég pósta hér hugrenningum þar sem ég sit og editera stúdíóupptökur sem eiga að fara á nýja diskinn minn. Planið er að hann verði tilbúinn 15. des, ég vona að það náist!
SZYMON:
Hér sit ég aftur, í sama hergergi í Eskihlíðinni og ég sat árið 2005 að semja lag fyrir fallinn vin og samstarfsmann. Ég hafði frétt lát hans daginn áður og fann skyndilega þessa þörf til að semja lag fyrir hann. Og núna fjórum árum seinna sit ég hér aftur og er að klippa og editera lagið hans, og þar að auki að bæta við smá föndri úr gömlum upptökum með honum. Það er ótrúlegt hvað er mikill karakter í þessu spili, og magnað að það sé hægt að fanga það á upptöku! Ég kem til með að skrá hann sem meðhöfund þar sem lagið hefði aldrei orðið eins og það varð án hans, og ég hefði aldrei orðið eins og ég varð án hans.
Þegar ég lít út um gluggann blasa fjöllin norður af Reykjavík við mér, snævi þakin. Það er smátt og smátt að verða bjartara. Eftir smá stund þarf ég að fara niður í þvottahús og taka úr vélinni, og svo skrepp ég í tvo tíma að kenna á gítar áður en ég sest aftur við tölvuna að vinna í laginu. Skrýtið hvernig lífið heldur áfram og árstíðarnar breytast bara sama hvað gerist.
Þegar ég lít aftur út um gluggann og í áttina að miðbænum, þá er skrýtið til þess að hugsa að þessi vinur minn og meðspilari sé ekki lengur þar, og sama má segja um aðra sem eru fallnir frá. Maður á mjög auðvelt með að ímynda sér hann og hina gangandi um göturnar, kannski að flýta sér eitthvert til að vinna í einhverju spennandi, eða kannski að hafa það notalegt á kaffihúsi. Ég sé hann líka fyrir mér sitjandi heima hjá sér að vinna í tónlist, beint á móti STEF...
Hér má lesa meira um Szymon Kuran, en annars er þetta langt frá því að vera tæmandi:
http://www.musicweb-international.com/classrev/2008/Jan08/Kuran_apo161.htm
http://www.requiemsurvey.org/composers.php?id=454
Friday, October 09, 2009
Brjálað að gera, m.a. tónleikar 15. okt. nk.
Jæja. Hér kemur stutt blogg. Það er vægast sagt búið að vera brjálað að gera, kellingin að spila á 2-3 tónleikum í næstu viku, og svo orgelfestivalið í Köben (þar sem leikið verður orgelstykki eftir mig) og París (þar sem ég mun spila á frjálsum spunatónleikum ásamt mjög spes hljóðfærum og flottum spilurum) í lok október. Svo ég tali nú ekki um öll tónverkin sem eru á "to do"-listanum mínum. Og svo er ég að vinna í plötunni góðu sem lengi hefur staðið til að gefa út. Planið er sem sagt að koma henni út um miðjan des, þannig að endilega hafið það í huga upp á jólagjafir ;). Ég mun selja diskinn fyrir jólin í pakka með tveimur miðum á útgáfutónleikana, en þeir verða í byrjun janúar. Planið er svo að verði disksins verði stillt mjög í hóf. En nánar um öll þessi plön síðar.
En já, það er ekki búið að vera mikið líf á mér í bloggheimum. Þar er fésbókinni helst um að kenna, því þar fæ ég útrás fyrir skriflegu tjáningarþörfina í stuttum lýsingum á hvað ég er að gera eða pæla. Svona er þetta. Til að vera memm þar bjó ég til smá "fan"-síðu á fésbókinni sem hægt er að skrá sig á og fá allar músíkbrasupplýsingar frá mér beint í æð. Endilega gerist aðdáendur mínir ;), smellið hér.
En byrjum á fyrstu tónleikunum í tónleikahrinunni minni, smá fréttatilkynning:
(Hallveig Rúnarsdóttir)
(Camilla Barratt-Due)
(Hljómsveit Hafdísar á Akureyri 2007, f.v. Grímur Helgason, Steinunn Gyðu- Og Guðjónsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Magnús Trygvason Eliassen, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Ragnar Emilsson)
Fimmtudaginn 15. október mun Hljómsveit Hafdísar með rafgítarleikaranum og tónskáldinu Hafdísi Bjarnadóttur í fararbroddi leika á Múlanum, Caffé Kulturé, Hverfisgötu. Sérstakur gestur mun leika með hljómsveitinni á tónleikunum, þ.e. norski harmonikkuleikarinn Camilla Barratt-Due, beint frá Berlín í boði norska sendiráðsins á Íslandi. Einnig mun Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona syngja tvö lög með hljómsveitinni, og er það í fyrsta skipti sem söngur heyrist í Hljómsveit Hafdísar.
Camilla Barratt-Due hefur leikið á harmonikku frá sjö ára aldri. Hún hefur lært harmonikkuleik hjá nokkrum af virtustu klassísku harmonikkuleikurum heims, þ.á.m. Frode Haltli, Geir Draugsvoll og James Crabb. Hún lauk BA námi í klassískum harmonikkuleik frá konunglega danska tónlistarháskólanum vorið 2009. Einnig leikur Camilla töluvert af impróviseraðri tónlist og notar oft eigin rödd í bland við harmonikkuna. Camilla hefur mjög sérstæðan stíl þar sem hún blandar saman sérstæðri rödd sinni og harmonikkunni í frjálsum spuna í bland við fyrirfram samið efni.
Hafdís Bjarnadóttir er nýkomin heim til Íslands úr tónsmíðanámi við konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn, þar sem hún m.a. blandaði saman hefðbundnum og óhefðbundnum tónsmíðaaðferðum við frjálsan spuna. Í sumar var frumflutt í Kaupmannahöfn verkið "Krónan" sem var samið að öllu leiti út frá fjármálalínuritum frá Íslensku bönkunum frá júní 2007 til janúar 2009, auk þess sem Hafdís spann frjálst yfir verkið á tónleikum í Kaupmannahöfn og London.
Hljómsveit Hafdísar var stofnuð árið 2002 og hefur síðan þá haldið tónleika hérlendis og erlendis. Hljómsveitin er síbreytileg eftir hverjir eru á landinu hverju sinni, og að þessu sinni munu leika auk Hafdísar á rafgítar Grímur Helgason á klarinett og bassaklarinett, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir á selló, Ragnar Emilsson á gítar og bassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Camilla Barratt-Due á harmonikku og Hallveig Rúnarsdóttir sópranöngkona. Efnisskráin er blanda af nýjum og nýlegum lögum eftir Hafdísi, önnur skemmtileg lög eftir aðra og frjáls og líflegur spuni.
En já, það er ekki búið að vera mikið líf á mér í bloggheimum. Þar er fésbókinni helst um að kenna, því þar fæ ég útrás fyrir skriflegu tjáningarþörfina í stuttum lýsingum á hvað ég er að gera eða pæla. Svona er þetta. Til að vera memm þar bjó ég til smá "fan"-síðu á fésbókinni sem hægt er að skrá sig á og fá allar músíkbrasupplýsingar frá mér beint í æð. Endilega gerist aðdáendur mínir ;), smellið hér.
En byrjum á fyrstu tónleikunum í tónleikahrinunni minni, smá fréttatilkynning:
(Hallveig Rúnarsdóttir)
(Camilla Barratt-Due)
(Hljómsveit Hafdísar á Akureyri 2007, f.v. Grímur Helgason, Steinunn Gyðu- Og Guðjónsdóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Magnús Trygvason Eliassen, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, Ragnar Emilsson)Fimmtudaginn 15. október mun Hljómsveit Hafdísar með rafgítarleikaranum og tónskáldinu Hafdísi Bjarnadóttur í fararbroddi leika á Múlanum, Caffé Kulturé, Hverfisgötu. Sérstakur gestur mun leika með hljómsveitinni á tónleikunum, þ.e. norski harmonikkuleikarinn Camilla Barratt-Due, beint frá Berlín í boði norska sendiráðsins á Íslandi. Einnig mun Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona syngja tvö lög með hljómsveitinni, og er það í fyrsta skipti sem söngur heyrist í Hljómsveit Hafdísar.
Camilla Barratt-Due hefur leikið á harmonikku frá sjö ára aldri. Hún hefur lært harmonikkuleik hjá nokkrum af virtustu klassísku harmonikkuleikurum heims, þ.á.m. Frode Haltli, Geir Draugsvoll og James Crabb. Hún lauk BA námi í klassískum harmonikkuleik frá konunglega danska tónlistarháskólanum vorið 2009. Einnig leikur Camilla töluvert af impróviseraðri tónlist og notar oft eigin rödd í bland við harmonikkuna. Camilla hefur mjög sérstæðan stíl þar sem hún blandar saman sérstæðri rödd sinni og harmonikkunni í frjálsum spuna í bland við fyrirfram samið efni.
Hafdís Bjarnadóttir er nýkomin heim til Íslands úr tónsmíðanámi við konunglega danska tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn, þar sem hún m.a. blandaði saman hefðbundnum og óhefðbundnum tónsmíðaaðferðum við frjálsan spuna. Í sumar var frumflutt í Kaupmannahöfn verkið "Krónan" sem var samið að öllu leiti út frá fjármálalínuritum frá Íslensku bönkunum frá júní 2007 til janúar 2009, auk þess sem Hafdís spann frjálst yfir verkið á tónleikum í Kaupmannahöfn og London.
Hljómsveit Hafdísar var stofnuð árið 2002 og hefur síðan þá haldið tónleika hérlendis og erlendis. Hljómsveitin er síbreytileg eftir hverjir eru á landinu hverju sinni, og að þessu sinni munu leika auk Hafdísar á rafgítar Grímur Helgason á klarinett og bassaklarinett, Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir á selló, Ragnar Emilsson á gítar og bassa, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Camilla Barratt-Due á harmonikku og Hallveig Rúnarsdóttir sópranöngkona. Efnisskráin er blanda af nýjum og nýlegum lögum eftir Hafdísi, önnur skemmtileg lög eftir aðra og frjáls og líflegur spuni.
Subscribe to:
Posts (Atom)

